fbpx
Tilboð

Ljósgildran

6.990 kr.

Ljósgildran  er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Umsögn dómnefndar:

„Marglaga og margslungið skáldverk sem er allt í senn, sársaukafullt tregaljóð, skúrkasaga, samtímasaga, ádeila á verðmætamat samfélagsins og karnivalísk afbygging þar sem furðuverur varpa ljósi á valdakerfi samtímans. Úthugsuð uppbygging sem er reglulega sprengd upp - þegar textinn flæðir yfir mörk alls þess sem hingað til hefur skilgreint skáldsögur. Tímamótaverk þar sem bókstaflega allt er undir.“

- - -

Dularfullur aðkomumaður gengur inn á hótel um miðjan vetur og þeytir móttökustjóranum og skáldinu H.M.S. Hermanni inn í iðu atburða þar sem tekist er á um völd og metorð og engum hlíft. Næstu vikurnar fléttast saman tveir heimar í þessu mikla og margradda verki. Þar segir frá harmrænum ástum hjónanna Jakobs og Láru um leið og íslensku stjórnmála- og menningarlífi er lýst á gráglettinn og afhjúpandi hátt.

Ljósgildran snýst ekki síst um nautnina að lesa, um sögurnar sem við segjum okkur á kvöldin þegar ljósin hafa slokknað og sögurnar sem samfélagið segir sér þegar það vill trúa því að brautin fram undan sé greið. En hversu haldbærar eru þessar sögur? Hvað gerist þegar leyndardómsfull öfl taka völdin í Reykjavík í dýpsta skammdeginu á sama tíma og farsóttarhræðslan ríkir og skilgreinir athafnir okkar?

Þessi skáldsaga á sér fáar fyrirmyndir í íslenskri bókmenntasögu en er þó mótuð af íslenskum og erlendum sagnaarfi. Hún er metnaðarfull tilraun til þess að fanga umbrotaskeið í sögu þjóðarinnar þegar fortíðin er óðum að gleymast og framtíðin er full af blindri von.

Höfundur: Guðni Elísson
Útgefandi: Lesstofan
Útgáfuár: 2021
Blaðsíðufjöldi: 800
Vörunúmer: LES934529
ISBN: 978-9935-9345-2-9
Þyngd: 1,4 kg

Vörunúmer: LES934529 Flokkur:

Lýsing

FRÍ HEIMSENDING

Lesstofan ehf., Flókagötu 60, 105 Reykjavík
Kt. 570511-1060 | VSK númer 110076 
 Sími: ‭662-0897‬  lesstofan@lesstofan.is